11. október 2006 klukkan 21:42
Heyriði, jæja, mér líst bara aldeilis ljómandi vel á hópferð á Þjóðarsálina sem fyrst og við þurfum endilega að skipuleggja það fljótlega,
en ósköp held ég að okkur Selfyssingum þætti nú vænt um ef sem flest ykkar sæju sér fært að mæta í Litla Leikhúsið okkar við Sigtún (þar sem var gist á rejúníoninu!) næstkomandi sunnudag, þann 15. október, annaðhvort kl. 17 eða 20. Þá verða nebbla einu tvær sýningarnar á Hugarfluginu okkar.
Hugarflugið samastendur af nokkrum stuttverkum sem okkur langaði að reyna okkur við, en ekki er um að ræða fullmótaðar uppsetningar. Meira svona til að hafa gagn og gaman af!
Ég held bara að nánast allir Selfyssingarnir sem voru á Húsabakka í sumar taki þátt - nema Víðir.
Sjáumst vonandi sem fyrst!
Gerður
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
09. október 2006 klukkan 22:56
Frumsýning í heppanðist með eindæmum vel! Ég mæli eindregið með hópferð..Eru ekki allir geim í það? Sýningartímar eru sem hér segir: http://einleikhusid.is/index.php?option=com_content&task=view&id=16&Itemid=15 Kv. Una Dóra
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
04. október 2006 klukkan 03:31
Langt síðan ég hef séð ykkur öll, er farin að sakna ykkar alveg ógó ógó mikið ! Annars er bara allt gott að frétta héðan að norðan, ég var að fá aðra kisu :)
Langaði að deila því með ykkur sem elska kisur að ég er búin að gera heimasíðu fyrir nýju kisuna, hún heitir Aþena :)
Tinna :
http://www.dyraland.is/dyr/23443Aþena:
http://www.dyraland.is/dyr/52491Kveðja úr kuldanum
Rósa gæludýrasjúka ;)
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
01. október 2006 klukkan 02:49
Hver fór á haustfundinn? og hvernig var? og hvernig gekk, ef þið gerðuð eitthvað?
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
20. september 2006 klukkan 17:45
Hverjir ætla á haustfundinn núna um aðra helgi? Eigum við að sjóða saman eitthvað skemmtilegt á föstudagskvöldinu, við sem verðum þarna? Hverjir verða þá og hverjir verða bara laugardag? Og hverjir verða með grænt hár og hverjir verða með fjólubláar doppur?!?
Gerður... Kannski soldið að missa sig...
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
15. september 2006 klukkan 23:17
Hvað segiði með það á ekki að fjölmenna á haustfundinn síðustu helgina í þessum mánuði?
Guðfinna var að spyrja hvort við værum til í að vera með skemmtiatriði á hátíðarkvöldverðinum sem verður á laugadagskvöldiu.
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
12. september 2006 klukkan 18:59
Búin að panta 15 miða (ákvað að það væri fínt að hafa rétt rúmlega,
4 auka miðar) á Eldhús eftir máli sunnudaginn 17. september næstkomandi.. vívíí!
Við fengum öll sæti á 2 bekk, ógesslega töff sæti skiluru!
Nú þurfið þið bara að hringja niðrí þjóðleikhús og skrá ykkur á mitt nafn og þá er bara allt klárt

kveðja Una Dóra
p.s endilega látið vita þegar þið eruð búin að skrá ykkur!
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
07. september 2006 klukkan 17:55
Einhvernveginn finnst mér næstum öll lífsorka hafa horfið úr indæla hópnum okkar eftir helgina og út vikuna..

Er ég ekki bara að bulla? Vonandi...
En það sem mér datt í hug var að athuga hvort einhver áhugi væri á öðrum hittingi á næstunni???

Þá er bara að fá að vita hvað mannkapurinn vill bauka á hittingi.. Fara keilu, eða bíó, eða kaffihús, eða bara heimaparty, eða pottaparty... hmmmm!
Lát heyra...

Kv.Una Dóra
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
05. september 2006 klukkan 18:06
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
05. september 2006 klukkan 17:01
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06