Svarfađardalurinn sćli!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hefur ţú fariđ og séđ einhvern af vinum ţínum úr Almúganum leika?

Ýmislegt sniđugt

Sýnafundur!

27. júní 2007 klukkan 18:29
Já ég veit að þetta kemur rosalega seint, en...

Sýnir ætlar að hafa fund að Eggertsgötu 6-10 í kvöld kl. 20.00 þar sem við ætlum að undirbúa eitthvað létt og skemmtilegt að gera í sumar.

Allir sem hafa áhuga og komast með stuttum fyrirvara að mæta, eða þá hafa bara samband við mig eða Jenný.

Kveðja, Gerður
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
Engin athugasemd

ţađ mćlti mín móđir...

28. maí 2007 klukkan 16:46
hey hó !!
eru ekki allir ógeðslega klárir í bandalagstextanum;) alveg spurning um að fara að rifja hann upp sko;) 11 dagar til stefnu;)

Það mælti mín móðir
að mér skyldi kaupa
fleyg af fegursta víni
En lát´eina og leikstjórinn
-lítið mig staupa
En ég stressast svo þegar ég sýni.

Og botnlanginn brostinn
Og bévítans sárin
Í maganum, hvað ég er kvalinn
Og gómana gleypti´
En ég gat gegnum tárin
Brosað samt út í salinn.

Því ég er einskis dóttir, ég er einskis son
Ég er ykkar systkin, það er engin von
Í heiminum fyrir handan
Bandalagið
Sem elding leiftri inní mér
Mitt annað heimili er hér
Er allt fyrir andann
Bandalagið

Og víst er að vörðinn
Við vandlega stöndum
Um menningararfinn okkar
Af hugsjónahita
Á hrollköldum ströndum
Íslands - því leikhúsið lokkar

Sá grátur, sú gleði
Sá galdur að skapa
Fegurð oft furðu vekur
En ef ég er álitinn
Ærunni tapa
Af að leika er ljóst ég er sekur.

Því ég er einskis dóttir, ég er einskis son
Ég er ykkar systkin, það er engin von
Í heiminum fyrir handan
Bandalagið
Sem elding leiftri inní mér
Mitt annað heimili er hér
Er allt fyrir andann
Bandalagið
Bandalagið
Banda laaa aaaaa giiiiiiið!


kveðja frá akureyrinni.. hlakka til að sjá ykkur.. kanski um næstu helgi en allavena 8 júní!!
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
17 athugasemdir

Bara

22. maí 2007 klukkan 14:54
Langaði að benda ykkur á að það eru bara rétt rúmar 2 vikur þangað til við hittumst í Skólanum okkar góða!!!!!!

Hvenær fáum við emil um endanlega þátttakendur á námskeiðinu??? Maður er orðinn svo forvitinn! Og Spenntur! Og hræddur!

AAAAAAAAAAAAAAAAAAA!!!!!!!!!!!!!!!!

Er svo ekki málið að hita upp fyrir skólann með því að mæta í Þjóðleikhúsið 7. júní???
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
14 athugasemdir

Summertime.. and the living is easy!

11. maí 2007 klukkan 12:44
Jæja krakkalingar
Eru ekki allir komnir í sumarskap í sólinni og blíðunni... ..ekki að grínast hva er gott veður og ég inni að vinna, oj bjakk!
Ekki beint gamó!
Ég var orðin svo leið á bingófyrirsögninni að ég varð bara að henda inn einni línu eða svo...hehehe
En hvernig er stemmarinn??? Ekki allir farnir al hringsnúast af spenningi yfir skólanum.. tjah allavega ég, uppum allaveggi,  ..djust kent veit!

Svo var ég að heyra að orðið á götunni væri, að það væri þvílíka töff að vera með í sýnum í sumar og þeir ætli kannski að vinna þannig að allir útá landi gætu verið með líka. Ég held samt að Hrund eða Jenný gætu sagt eitthvað meira um þetta allt saman.. einhverjar hugmyndir komnar í gang þar á bæ.
Annars var ég nú að velta fyrir mér hvort væri ekki hægt að endurvekja smá almúga stemningu síðan síðasta sumar og fara út að leika??

Skólasystir og nunna
Una Dóra
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
9 athugasemdir

Bingó

11. apríl 2007 klukkan 00:17



http://www.hugleikur.is/index.php?page=kynning.php&id=193

Allar sýningar eru kl 20:30

Nema á laugardaginn 21 apríl þá er sýnt kl 23:00
Fimmtud. 19. apríl 3. sýning

Laugard. 21. apríl 4. sýning
Sunnud. 22. apríl 5. sýning

Miðvikud. 25. apríl 6. sýning

Mánud. 30. apríl 7. sýning

Fimmtud. 3. maí 8. sýning

Föstud. 4. maí 9. sýning

Laugard. 5. maí 10. sýning

Föstud. 11. maí 11. sýning

Sunnud. 13. maí 12. sýning

Föstud. 18. maí 13. sýning

Allir að drífa sig í leikhús.
kveðja Gummi

Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
Almennt | 9 athugasemdir

HEY!

07. mars 2007 klukkan 13:59
Bæklingurinn er kominn!!!

Námskeið 1
Sérnámskeið í leikstjórn
Kennari Egill Heiðar Anton Pálsson
Þátttökugjald kr. 45.000
Námskeiðið er ætlað þeim sem sótt hafa Leikstjórn I og II og/eða framhaldsnámskeið eða hafa umtalsverða reynslu af leikstjórn
Námskeiðið er kynning á kerfum rússneska leikstjórans og leikarans Konstantín Stanislavskiji og eftirrennara hans. Unnið er með tvær kenningar hans: Kerfi líkamlegra gerða, sem er vinna leikarans og Greiningakerfi gerða, sem er vinna leikstjórans. Þessi tvö kerfi mynda eina heild í leikhúsvinnu ásamt því að vera undirstaða í vestrænni leiklist.
Unnið verður með hugtök og heiti í formi fyrirlestra eftir hádegishlé á daginn en fyrir hádegi verður unnið á verklegan hátt með þessi hugtök og virkni þeirra.
Áður en námskeiðið hefst þurfa nemendur að lesa nokkur leikrit sem unnið verður með.
 
Námskeið 2
Leiklist I - Byrjendanámskeið fyrir leikara
Kennari Ágústa Skúladóttir
Þátttökugjald kr. 45.000
Námskeiðið er grunnnámskeið fyrir leikara og þeir ganga fyrir sem ekki hafa sótt Leiklist I.
Næsta sumar verður haldið framhaldsnámskeið sem byggir á þessu námskeiði.
Á námsekiðinu verður farið í grunnatriði í list leikarans.
Unnið verður með að leysa úr viðjum frumorku, einlækni og sköpunargleið leikarans, samband hans við sjálfan sig, meðleikara og áhorfendur.
Unnið verður með líkamsbeitingu og textameðferð og einnig verður kíkt á mismunandi leikaðferðir og leikstíla.
Mikilvægi liðsheildar hóps verður ríkjandi þáttur námskeiðisins því þegar hlustun og leikgleði ráða ríkjum getur allt gerst.
 
Námskeið 3
Sérnámskeið fyrir leikara
Kennari Stephen Harper
Þátttökugjald kr. 45.000
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa sótt leiklistarnámskeið á vegum skólans eða hafa umtalsverða reynslu af leiklist. Kennarinn talar ensku en gert er ráð fyrir að nemendur megi tjá sig á íslensku í spuna og vinnu með texta.
Á námskeiðinu veðrur unnið með þekkta texta sem verða kynntir síðar. Í fyrstu verður unnið með ákveðna tegund af heilgrímum. Unnið verður út frá líkamstjáningu, kyrrð, fókus og látbragði og unnið með að búa til persónur og senur.
Þá verða grunnatriði leikhúshefðarinnar Commedia dell arte skoðuð sérstaklega en þessi leikstíll krefst mikillar orku í tali og líkamstjáningu. Unnið verður með stílinn, tempó, helstu karaktera Commedia og aðstæður. Hópurinn mun leita að eigin Commedia leikstíl og skapa og finna nýjar leiðir til að vinna með hefðbundnar senur og aðstæður - sem sagt „Commedia with a modern twist!“
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
34 athugasemdir

Er ekki..

22. febrúar 2007 klukkan 08:30
..kominn smá fiðringur í liðið??

Með hækkandi sól kemst maður í fílinginn.
Tjah allavegana er ég farin að hlakka pínu til þess að komast í skólann aftur.
Er ekki einhver sammála.. 
Og er ekki spurning um að endurlífga almúgann áður en vorið breytist í sumar?

Bara datt þetta svona í hugHlæjandi

Kv. Una Dóra
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
15 athugasemdir

Allir ađ mćta!!

01. febrúar 2007 klukkan 06:47



Frumsýning á laugardaginn eða nánar tiltekið 3. febrúar klukkan 14:00 en það er orðið uppselt á hana! Önnur sýning er líka að seljast upp en hún er sunnudaginn 4. febrúar klukkan 20:00...Búið að bæta við aukasýningu mánudaginn 5. febrúar klukkan 20:00 og er allt að verða vitlaust yfir þessu!!! Í boði er ógeðslega væminn texti, perrapappi, franskar yfirstétta-hórur og tvöfalt brúðkaup...eða algjör draumur ;o)

Miðapantanir fara fram á midi.is eða með því að hringja í Söngskólann í Reykjavík en símanúmerið þar er 552-7366 og miðinn kosta 1.500 kr.


Kv. Jenný Lára

Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
10 athugasemdir

Hnerrinn

18. janúar 2007 klukkan 00:25
Hæ þið öll og árið og það allt.Það væri gaman að fara aðsjá hvort þessi síða er steindauð eða hvað. það væri allavega gaman að fara að sjá eitthvað lífsmark hérna. En hvað um það mig langar bara til að segja ykkur af því að Leikfélag Selfoss frumsýnir núna á föstudaginn s.s. 19.Janúar sýninguna Hnerrann eftir Anton Tékkoff (efast um að það sé skrifað svona) nánar tiltekið klukkan 20:30 að staðar tíma og síðan sínum við 27.og 28. jan. nánar auglýst síðar.það væri gaman að sjá ykkur.



kveðja.Einsi
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
11 athugasemdir

Gleđilega jól og allt ţađ.

24. desember 2006 klukkan 18:16
Almúginn í París óskar öllum heiminum gleðilega hátíð.
Megi ljós ykkar lýsa upp himin og fylla fólk af yl og ást.
Þakkir fyrir ánægjustundir á liðnu ári, megi þær verða fleiri á næsta( er ekki annars hlaupár?).

Svo biður Víðir að heilsa.
Nemendur Ágústu Skúladóttur Húsabakkaskóla ´06
8 athugasemdir